Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja

Frumkvæðismál (1911215)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Erindi

Sendandi Skýring Dagsetning
Forseti Alþingis Lok frumkvæðisathugun þingnefnda 16.06.2020
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Svar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis við beiðni um upplýsingar - framhaldsfyrirspurn um hæfisreglur o.fl. 23.03.2020
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Fyrirspurn fjórðungs nefndarmanna stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 04.03.2020
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Greinargerð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti 20.01.2020
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Upplýsingabeiðni frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna frumkvæðisathugunar á hæfi ráðherra 06.12.2019

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
05.06.2020 68. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hildi Evu Sigurðardóttur, forstöðumann nefndasviðs Alþingis.

Líneik Anna Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, 6. desember 2019, samþykktu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Andrés Ingi Jónsson, að hefja frumkvæðisathugun á hæfi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja. Samkvæmt 13. grein þingskaparlaga skal slík athugun fara fram komi beiðni frá að minnsta kosti fjórðungi nefndarmanna.
Áður en beiðni um frumkvæðisathugun nefndarinnar var lögð fram komu gestir fyrir nefndina meðal annars sérfræðingar í stjórnsýslurétti frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík og fulltrúar forsætisráðuneytisins sem fóru yfir og útskýrðu skráðar og óskráðar reglur um hæfi ráðherra almennt.
Eftir að frumkvæðisathugun hófst óskaði nefndin eftir greinargerð frá ráðherra með tilteknum upplýsingum er varðar lagaákvæði sem gilda við mat á hæfi ráðherra, verklag við mat á hæfi hans með tilliti til skráðra og óskráðra hæfisreglna stjórnsýsluréttar og hvort og þá með hvaða hætti hafi reynt á hæfi ráðherrans í málum tengdum Samherja og/eða tengdum aðilum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið svaraði beiðninni með ítarlegri greinargerð dagsettri 16. janúar 2020. Ráðherra mætti síðan á opinn fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 22. janúar 2020 og gerði frekari grein fyrir þeim atriðum er beiðnin laut að og svaraði spurningum nefndarmanna.
Á fundi nefndarinnar þann 4. mars 2020 var málið rætt og nefndarmenn sammæltust um að kalla sérfræðinga aftur til fundar við nefndina og þrír nefndarmenn þau Andrés Ingi Jónsson, Guðmundur Andri Thorsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir ákváðu að senda framhaldsfyrirspurn til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Óskuðu þau eftir skriflegum svörum við 16 spurningum með bréfi þann 9. mars. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið svaraði spurningunum með bréfi dagsettu 23. mars 2020.
Á fundi nefndar þann 4. júní komu gestir fyrir nefndina meðal annars sérfræðingar í stjórnsýslurétti og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Eftir umfjöllun nefndarinnar liggur eftifarandi fyrir.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur engra hagsmuna að gæta af Samherja eða tengdum félögum í skilningi stjórnsýslulaga, hvorki fjárhagslegra né persónulegra. Samkvæmt lögum metur ráðherra hæfi sitt sjálfur og ekkert hefur komið fram um að framkvæmd eða verklag á því mati hafi farið í bága við lög og reglur.
Ég tel frekari könnun tilgangslausa og tel ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessa frumkvæðisathugun innan stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Birgir Ármannsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Egilsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé tóku undir bókunina.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Eitt af verkefnum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er að hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra sem ástæða þykir til að athuga á grundvelli þess eftirlitshlutverks sem Alþingi hefur gagnvart framkvæmdarvaldinu. Í 2. mgr. 8. tölul. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis segir að komi beiðni um slíka frumkvæðisathugun frá a.m.k. fjórðungi nefndarmanna skuli hún fara fram. Þessi réttur minni hlutans er sérstaklega mikilvægur í ljósi þess að alla jafnan beinast frumkvæðisathuganir að verklagi og ákvörðunum ráðherra sem sitja í skjóli meiri hluta þings. Það er jafn mikilvægt að skýrt sé hverjar lyktir frumkvæðisathugana nefndarinnar eru. Meiri hluti nefndarinnar hefur fært til bókar að hann telji ekki ástæðu til frekari skoðunar á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja. Minni hluti nefndarinnar telur málið hins vegar ekki fullrannsakað og hefur því óskað eftir frekari gestakomum og að aflað verði frekari gagna í málinu.
Ágreiningur er því um framhald málsins á milli þess hluta nefndarmanna sem óskaði eftir frumkvæðisathuguninni og meiri hlutans sem frá upphafi var mótfallinn því að þessi athugun færi fram. Þann ágreining mætti gera út um á tvennan máta. Leggist meiri hlutinn gegn frekari gestakomum gæti hann lagt til að afgreiða málið frá nefndinni með skýrslu til Alþingis þar sem mætti skýra frá helstu sjónarmiðum til stuðnings afstöðu nefndarmanna til málsins. Önnur nálgun til þess að leysa úr þessum ágreiningi væri að fela framsögu málsins nefndarmanni sem telur ástæðu til frekari skoðunar á því. Meiri hlutinn hefur lagst gegn báðum þessum leiðum.
Afstaða meiri hlutans ber merki um vanvirðingu fyrir réttindum og hlutverki minni hlutans á þingi, ýtir undir grunsemdir um samtryggingu og leyndarhyggju, lítilsvirðir sérstakt eftirlitshlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og er til þess fallin að veikja Alþingi og traust almennings á því. Minni hlutinn harmar þessa afstöðu.

Andrés Ingi Jónsson og Guðjón Brjánsson tóku undir bókunina.

Andrés Ingi Jónsson lagði til að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir yrði framsögumaður málsins í stað Líneikar Önnu Sævarsdóttur. Gengið var til atkvæða um tillöguna.

Andrés Ingi Jónsson, Guðjón Brjánsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir greiddu atkvæði með tillögunni.

Birgir Ármannsson, Óli Björn Kárason, Þorsteinn Sæmundsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Þórunn Egilsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Var tillagan felld með sex atkvæðum gegn þremur.
04.06.2020 67. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ágúst Geir Ágústsson skrifstofustjóra og Ásgerði Snævarr frá forsætisráðuneytinu.
04.03.2020 44. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja
Nefndin ræddi málið.

Á grundvelli 1. mgr. 51. gr., sbr. 2. mgr. 8. tölul. 13. gr. þingskapa ákváðu Andrés Ingi Jónsson, Guðmundur Andri Thorsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir að senda upplýsingabeiðni til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ákváðu þau að veita ráðherra tveggja vikna svarfrest.
22.01.2020 35. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja
Á fundinn komu Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir greinargerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem send var nefndinni 17. janúar sl. og svaraði spurningum nefndarmanna.

Fleira var ekki gert.
20.01.2020 34. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja
Nefndin ræddi málið.

Tillaga LínS um að halda opinn fund með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, miðvikudaginn 22. janúar kl. 09:00 var lögð fram. BN studdi tillöguna. Tillagan var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.
16.12.2019 29. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja
Líneik Anna Sævarsdóttir, framsögumaður málsins, fór yfir drög að upplýsingabeiðni til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis með afriti á forsætisráðuneytið.

Samþykkt að senda upplýsinabeiðnina með fresti til 17. janúar 2020.
06.12.2019 26. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hæfisreglur ráðherra
Nefndin ræddi málið.

Formaður lagði fram eftirfarandi tillögu:
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir leggur til að nefndin hefji frumkvæðisathugun á hæfi Kristjáns Þórs Júlíussonar í ljósi stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja.
Nefndin athugi verklag ráðherra ásamt verkferlum og framkvæmd ráðherra sem og ráðuneyti hans í tengslum við útgerðarfyrirtækið Samherja og tengd félög skv. skilgreiningum í lögum um ársreikninga. Skal hæfi ráðherra skoðað með tilliti til skráðra sem og óskráðra hæfisreglna stjórnsýsluréttar.

Óli Björn Kárason lagði til að óskað yrði eftir upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um hvort reynt hafi á yfirlýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um hæfi sitt frá 2017 áður en ákveðið verður að hefja frumkvæðisathugun, formaður hafnaði beiðninni.

Gengið var til atkvæða um tillögu formanns og var hún samþykkt með atkvæðum fjórðungs nefndarmanna, sbr. 2. mgr. 8. tölul. 13. gr. þingskapa; Andrésar Inga Jónssonar, Guðmundar Andra Thorssonar og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur.

Formaður lagði til að hann yrði framsögumaður málsins.

Brynjar Níelsson lagði til að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður málsins.

Líneik Anna Sævarsdóttir óskaði eftir að hlé yrði gert á fundi. Fundarhlé var frá 12:14-12:15.

Gengið var til atkvæða um tillögu Brynjars Níelssonar og var hún samþykkt með atkvæðum 5 nefndarmanna; Brynjars Níelssonar, Kolbeins Óttarssonar Proppé, Líneikar Önnu Sævarsdóttur, Óla Björns Kárasonar og Þórarins Inga Péturssonar.

Þorsteinn Sæmundsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Málsmeðferð innan nefndarinnar undanfarna daga er mér mikil vonbrigði. Formaður nýtur ekki míns trausts.
05.12.2019 24. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hæfisreglur ráðherra
Á fundinn komu Ágúst Geir Ágústsson og Ásgerður Snævarr frá forsætisráðuneytinu og gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

Samþykkt að funda að nýju um málið á morgun kl. 11:30.
25.11.2019 20. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Hæfisreglur ráðherra
09:30 Á fund nefndarinnar komu Trausti Fannar Valsson og Sindri Stephensen. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

10:55 Á fund nefndarinnar komu Jón Ólafsson, Páll Rafnar Þorsteinsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.